Undarlegt fréttamat

Í vídeóinu sem að fylgir þessari frétt er sagt frá því að einn þekktasti leikari heims, Paul Newman, sé við dauðans dyr en hann hefur barist við krabbamein. Þetta eru náttúrulega hræðilegar fréttir og það merkilegar að maður hefði nú haldið að mogginn segði frá því. En þetta þykir greinilega ekki nógu merkilegt á þeim bænum. Það þykir vera meiri frétt að Matthew McConaughey skuli ætla að “gróðursetja” fylgju nýfædds sonar síns.

Er það virkilega svo að stórleikarar á borð við Paul Newman séu fallnir í svo mikla gleymsku að yfirvofandi dauði hans þykir ekki fréttnæmt? Ég veit alla vega að mér þykir þetta vera heilmikil frétt en það er kannski vegna þess að ég er mikill kvíkmyndaáhugamaður og hef séð fjöldann allan af myndum með þessum merka leikara.

En svona er þetta bara. Það sem einum finnst merkilegt finnst öðrum ómerkilegt.

[Facebook]

Himneskt lasagna

Ég legg það nú ekki í vana minn að skrifa um mat en lasagnað sem að ég eldaði áðan var bara svo gott að ég má til með að leyfa fleirum að njóta þess. Hugmyndina að þessu lasagna fékk ég eftir að hafa googlað lasagna uppskriftir og fann tvær sem að mér leist sérstaklega á. Ég ákvað þá að blanda þessum uppskriftum saman en lét það samt ekki duga heldur kom mínu eigin fingrafari á það líka. ATH, myndin sýnir ekki gæðalasagnað mitt.

En uppskriftin er á þessa leið:

Kjötsósa:
500 gr hakk
1 pakki beikon
1 stór laukur
1 paprika af þeim lit sem ykkur hugnast (var sjálfur með rauða)
3-4 hvítlauksgeirar
100 gr Sveppir
1 dós tómatar (var með sósu en alveg hægt að nota hakkaða líka)
1 dós tómapuré
timian
basilikum
Oregano
chilli krydd
salt og pipar
Olía til steikingar

Hvít sósa:
1 piparostur
mjólkurdreytill

lasagna plötur
rifinn ostur

Matreiðsla:
Beikonið, utan 4-5 sneiðar, er skorið niður í litla bita og steikt á pönnu. Beikonið tekið af pönnunni og sett til hliðar. Grænmetið skorið í mátulega litla bita og steikt á pönnu og sett svo til hliðar. Hakkið brúnað á pönnu og kryddað með timian, basilikum, oregan, pipar og chilli (kryddað eftir smekk). Saltað eftir þörufm en munið að beikonið er salt. Tómatpuré og tómatsósu bætt út í og leyft að malla aðeins. Grænmetinu og beikoni bætt út í og látið malla. Á meðan að þessu hefur staðið er gott að leyfa piparostinum að bráðna í smá mjólk.
Þegar að piparosturinn er bráðnaður og kjötsósan bún að malla er byrjað að raða þessu saman. Smá af piparostinum er sett í botninn á eldföstu móti. Þriðjungur af kjötsósunni fer þar ofan á og svo lasagna plata. Piparostur settur ofan á lasagna plötuna og næsti þriðjungur af kjötsósunni þar ofan á. Annað svona lag sett, lasagna plata, rest af piparosti og rest af kjötsósu. Ofan á þetta fer síðan ein lasagna plata til viðbótar og svo osturinn. Ofan á ostinn fara síðan beikonsneiðarnar sem að voru geymdar í upphafi. Bakað í 200° heitum ofni í 30 mín. Mjög gott er síðan að strá smá Maldon Sea Salt (í flögum) yfir þegar þetta er tekið út úr ofninum.

Með þessu er síðan hægt að hafa nánast hvaða meðlæti sem er en ég var með hrásalat og hvítlauksbrauð.

[Facebook]