Newcastle fær Nígeríupóst
Ég sé þetta alveg fyrir mér.
Newcastle hefur fengið bréf þar sem nígeríumaður segir frá vandræðum sínum við að koma fjármunum, sem að hann erfði eftir ömmu sína, úr landi og spyr hvort að þeir séu til í að selja honum liðið svo það takist. Eina sem að Newcastle þarf að gera er að stofna reikning og leggja milljón pund inn á hann og svo millifærir nígeríumaðurinn, sem að öllum líkindum er prins, sínar 400 milljónir inn á reikninginn.
Nú er bara spurningin hvort að Mike Ashley falli fyrir bragðinu.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)