Alive and kicking
Það er búin að vera ansi mikil þögn hérna á þessu bloggi undanfarið. Það orsakast reyndar ekki vegna þess að ég hafi ekkert að segja heldur hefur mestur kraftur í mínum skrifum verið á moggablogginu undanfarið eða síðan að allt fór til fjandans hér að okkar ágæta landi. Ástæðan fyrir því er tvíþætt, annars vegar vegna þess að ég hef reynt að halda pólitíkinni í lágmarki á þessu bloggi (og ég er búinn að vera ansi heitur útaf pólitískum málefnum undanfarna tvo mánuði) og svo hins vegar að ég hef viljað ná til fleiri aðila með það sem að ég hef verið að skrifa undanfarið og hef því verið að tengja mín skrif við fréttir á mbl.is til að meira beri á mér.
Þar fyrir utan er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér undanfarið. Ég er náttúrulega að vinna á fullu og ekki þýðir að slá slöku við á þeim vígstöðvunum á þessum síðustu og verstu tímum. Að auki er ég að dunda við ýmislegt utan vinnu. Þannig er ég t.d. að búa til dagatal fyrir Sniglana. Ég var dreginn inn í rýnihóp hjá Sniglunum. Opnu borgarafundirnir eru líka að taka drjúgan skerf af tíma mínum og stefnir í að það taki jafnvel enn meiri tíma. Þar er ég, við annan mann, að sjá um vefsíðu hópsins, taka myndir af fundunum, hjálpa til við skipulagningu þeirra og svo hittumst við reglulega til að fara yfir málin og fáum þá einhverja góða aðila til að útskýra fyrir okkur hina ýmsu hluti. Þetta er búið að vera það mikið undanfarið að ég hef ekki einu sinni getað mætt í kvikmyndaklúbbana tvo sem að ég er í.
En eins og ég sagði hér í upphafi þá hef ég verið að tjá mig á moggablogginu og ef einhver vill sjá hvað ég hef að segja þá er viðkomandi velkominn þangað inn.
orévwa
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)

