Ritskoðaður af boðbera friðar

Núna rétt fyrir jólin fór vefsíðan sorprit.com í loftið. Margir þóttust sjá fingraför Ástþórs Magnússonar á þessari síðu enda hefur hann átt í deilum við DV undanfarið og sorprit.com er einmitt beint gegn DV. Ástþór hefur staðfastlega neitað þessum tengslum og hefur meira að segja boðið aðstandendum síðunnar fjárhagslegan stuðning.

En er hann þá ekki að færa peningin bara á milli vasa í eigin buxum hugsa margir með sér.

Ég tók mig til og skráði mig inn á síðuna domaintools.com og notaði þar tólið domain history til að skoða eldri whois færslur um sorprit.com. Þetta grams mitt skilaði áhugaverðri niðurstöðu. Fram til 18. desember á þessu ári var sorprit.com skráð á Thor Magnusson, til heimilis á Vogaseli 1. Þessi Thor Magnusson er betur þekktur hér á landi sem Ástþór Magnússon Wiium. Það sem meira er þá var hann líka skráður fyrir þessu léni í október á síðasta ári eins og sjá má á skjámyndunum hér að neðan.

sorprit.com_1sorprit.com_5sorprit.com_6

Ég setti þessar upplýsingar í komment hjá Ástþóri og hann svaraði því til að aðstandendur síðunnar hefðu leitað til sín til að villa um fyrir þeim sem væru að reyna að komast að því hverjir stæðu að síðunni. Þeir hafi breytt IP tölum síðunnar nokkrum sinnum i þessum tilgangi. Málið er hins vegar að skráning lénsins hefur í raun ekkert með IP töluna að gera. Þar sést hins vegar hver er skráður fyrir síðunni.

Ég ákvað þá að skrifa komment á síðuna hjá Ástþóri og benti honum á að hann hefði verið skráður fyrir síðunni í rúmt ár áður en sorprit.com fór í loftið og ætti því mjög erfitt með að trúa því að nokkur maður hafi tekið sér það langan tíma í það að blekkja nokkra bloggara og notendur á malefnin.com. Næsta sem ég veit er að kommentið hafði verið fjarlægt af bloggsíðu Ástþórs og lokað fyrir það að ég kommenti á síðuna.

ritskodun

Útfrá þessu öllu saman kemst ég bara að einni niðurstöðu. Ég var kominn ansi nærri sannleikanum um sorprit.com. Maðurinn sem að berst nú hatrammri baráttu gegn nafnleysingjunum á málefnunum vegur að einu dagblaða landsins úr leyni.

[Facebook]

Tekið á fjárglæframönnunum af festu

Ástandið í dag er mjög sérstakt. Landið nánast á hausnum, skuldir fárra á herðum margra og ríkisstjórn án trausts situr við völd. Ekki má leita að sökudólgum og engu má breyta því þá gætum við eyðilagt björgunarleiðangurinn sem stjórnvöld efndu til eftir að hafa tapað áttum sjálfri. Ekki er það reyndar gæfulegur björgunarleiðangur enda er hvorki notast við kompás eða GPS tæki heldur reynir ríkisstjórnin að stýra eftir stjörnunum þrátt fyrir þungbúinn himinn.

Og til að tryggja það að tekið sé rétt á málum er farið í sparnað. Sparað er í menntakerfinu sem að fólk er samt hvatt til að nýta sér, heilbrigðiskerfinu sem að fjölmargir neyðast til að nýta sér, störfum í opinbera geiranum er fækkað og fólk sett á atvinnuleysisbætur í staðin og svona mætti lengi telja.

En ríkisstjórnin má eiga það að hún ætlar að “rannsaka” hrun bankanna. Það á reyndar ekki að rannsaka allt samkvæmt frumvarpinu enda gæti það komið við kauninn á rétt tengdum aðilum og það gæti ruggað björgunarbátnum hriplega sem að ríkisstjórnin er að notast við í leiðangrinum fræga.

Á þessum sama tíma og verið er að “rannsaka” hrunið er svo gripið til niðurskurðar hjá þeirri stofnun sem að maður skildi ætla að tæki að sér eftirfylgni af “rannsókninni” ef í ljós kemur að um refsivert athæfi hafi verið að ræða. Það er s.s. fækkað í efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra. Læðist nú að manni sá grunur að beita eigi olíusamráðstækninni á hugsanleg brot vegna bankahrunsins, þ.e. að draga rannsóknina það mikið að brotin verði fyrnd þegar að loksins verður hægt að fara með málið fyrir dómstóla.

Eftir því sem fjær dregur hruninu kemst ég meira og meira að því að þessi ríkisstjórn, sem að ég hafði aldrei mikla trú á, er gjörsamlega vanhæf.

Frétt af visir.is

[Facebook]

En hvað með verðtryggðu lánin?

Vonandi verður þeim spurningum svarað á Opnum borgarafundi í Háskólabíói kl 20 í kvöld.

OPINN BORGARAFUNDUR #5

Háskólabíó Mánudaginn 8. desember, klukkan 20:00.

Fundarefni: Verðtryggingin,skuldir heimila og fl.

Við skorum á forystumenn verkalýðsfélaga og lífeyrissjóða, Viðskiptaráðherra og Félagsmálaráðherra til að mæta og svara spurningum milliliðalaust
Auk þess hvetjum við alla aðra ráðherra og þingmenn að mæta að og hlusta á sitt fólk.

Hinum almenna borgara mun nú gefast tækifæri að spyrja viðkomandi forustusveit spjörunum úr.

Þá munu verkalýðshreyfingin, fulltrúar lífeyrissjóða auk ráðherra eiga kost á því að skýra fyrir okkur almennum borgurum hvernig þessi samtök munu mæta kreppunni með okkur.

Hvernig hefur varðveisla eigna okkar gengið fyrir sig hjá lífeyrissjóðunum, hver er niðurstaðan,hvað er tapið mikið ?

Mun verðtryggingin gera þá sem skulda eignalausa? -Landflótta?

Frummælendur:
Ásta Rut Jónasdóttir, húsmóðir
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri alþýðusambands Íslands
Vésteinn Gauti Hauksson, markaðsstjóri

Við fækkum frummælendum úr fjórum í þrjá vegna fjölda áskorana um að gefa áheyrendum í sal meiri tíma til spurninga.

þegar frummælendur hafa lokið máli sínu geta fundarmenn tjáð sig eða spurt gesti Borgarafundarins.

Fjölmennm á fundinn, spyrjum spurninga og fáum svör. Án þeirra getum við ekki myndað okkur skoðun né tekist á við vanda heimilanna.

Sýnum borgaralega virkni, ábyrgð og samstöðu-mætum í Háskólabíó.

[Facebook]

Leitum Sannleikans

Rakst á eftirfarandi færslu hjá spámanninum.

Samkvæmt frumvarpinu um rannsóknarnefndina er það tilgangurinn.  Gott og vel. Skoðum samt aðeins hverjir ætla að leita sannleikans. Sturla Böðvarsson (xD) semur, ásamt aðstoðarmönnum (xD), frumvarpið. Birgir Ármannsson (xD) er fomaður allsherjarnefndar sem fjallar um frumvarpið, svo kemur rúsínan í pylsuendanum, liklegt er að Páll Sveinsson (xD) hæstarréttardómari muni leiða rannsóknarnefndina. Hafa ber í huga að Páll þessi Sveinsson er fyrrum skósvein Davíðs Oddsonar (xD) og Geir H. Haarde (xD). Hvernig haldið þið að hann hafi orðið hæstaréttardómari?

Það er nokkuð ljóst að undanfarnar vikur hafa bankamenn staðið vaktina við tætaranna og því er fáránlegt til þess að hugsa að þessi vinna á að taka ár. Mér er fyrirmunað að skilja hvaða sannleik þeir ætla að finna úr þessu annan en þann sem er þeim þóknanlegur. Þessi rannsókn mun aðeins fara fram EINU sinni. Munið það kæru landar, HÚN VERÐUR AÐ FARA FAGMANNLEGA FRAM.

Með þetta í huga veltir maður fyrir sér hvort það að „leita sannleikans“ sé í raun tilgangur nefndarinnar. Sjálfstæðismenn eru þarna allir í öllu. Ég held að flestir geti verið sammála um það að sú stefna sem hefur leitt okkur til glötunar sé frjálshyggjan. Ríkið á ekki að skipta sér að markaðnum, markaðurinn leiðréttir sig sjálfur, því meira frelsi því betra, það er gott að græða á daginn og grilla á kvöldin o.s.fr.v. Ég ásamt fleirum erum hrædd um að tilgangur „réttarrannsóknarinnar“ sé fyrst og fremst að finna einhverja einstaklinga til að skella sökinni á. Þar af leiðandi róast almenningur og við sitjum eftir með sama viðbjóðslega kerfið sem þessir háu herrar uppnefna lýðræði. Þið skuluð ekki gleyma því að hugtakið löglegt en siðlaust er ekki bara hugtak á Íslandi. Hvar er allt menntafólkið okkar? Af hverju eru þau ekki að mótmæla Þessum vinnubrögðum?  Eru háskólarnir á landinu bara heilaþvottastöðvar flokkanna?

Flokkurinn fyrst! Ekki gleyma því heldur.

EDIT: Ég fékk senda eftirfarandi athugasemd við þessa færslu

þú gerist sekur um alvarleg mistök í nýustu blogg færslu þinni
Páll Sveinsson (reyndar Páll Hreinsson) er sennilega vandaðasti og hæfileikaríkasti embættismaður sem þjóðin á
veit ekki hvort hann sé D eða ekki, en hann er eini umsækjandi í HR sem BB hefur skipað sem hefur verið rétt
þetta er yfirburða maður sem tekur ekki við neinum skipunum frá neinum

[Facebook]