Áhugavert

Það er áhugavert hvað bloggarar landsins eru snöggir til að ausa úr skálum reiði sinnar þegar að eitthvað fer úrskeiðis í mótmælunum. Bloggararnir hafa ausið svívirðingum yfir mótmælendur undanfarna daga vegna ofbeldisverka fáeinna einstaklinga sem, að mér skilst, eru margir hverjir góðkunningjar lögreglunnar. Legið hefur við að mótmælendur hafi verið stimplaðir réttdræpir í hamaganginum við að ata aur á þá sem að áttu engan þátt í þeim ólátum sem urðu fyrr í vikunni.

Menn eins og Gísli Freyr Valdórsson hafa verið ansi duglegir við að koma með svo risavaxna sleggjudóma að ætla mætti að sleggjan sem til þarf til svoleiðis verka sé hið minnsta tveggja manna maki og hefur læðst að manni sá grunur að hann og fleiri séu útsendarar hins illa (sjálfstæðisflokksins) og skrifi samkvæmt fyrirmælum úr valhöll.

En þegar að allt fer friðsamlega fram ber minna á bloggum landsins. Það þykir ekki nema örfáum ástæða til þess að hrósa mótmælendum, þessum skríl sem að hvítliðar hafa stimplað sem hryðjuverkamenn, ótýnda glæpamenn og margt annað miður fallegt, fyrir að standa saman í því að koma í veg fyrir ofbeldi og skemmdarverk. Það gleyma ansi margir því að langflestir mótmælendur, þar með talið ég, vilja ekki meiða eða skemma heldur láta vel í sér heyra þannig að loksins verði farið að hlusta.

Þið sem stóðuð vaktina í gær gerðuð það með sóma. Appelsínuguli liturinn sem táknar andstöðu við ofbeldi virðist vera að virka. Takk fyrir að standa vaktina fyrir mig í gær þar sem að ég komst ekki. Þið eruð hetjur. Höldum þessum takti í mótmælunum og pössum upp á það að ólátabelgirnir laumi sér ekki aftur í okkar raðir.

[Facebook]

Þarna var skríllinn að verki en ekki mótmælendur

Ég vil benda á þessa færu hjá henni Heiðu bloggvinkonu minni um þessi átök í gær.

Takið sérstaklega eftir því þegar hún lýsir því hvernig hinir raunverulegu mótmælendur mynduðu skjaldborg fyrir framan lögregluna til að verja hana.

Við meigum ekki rugla saman skrílnum, sem að er að notfæra sér mótmælin til að fá útrás fyrir annarlegum hvötum, og hinum raunverulegu mótmælendum sem hafa hátt án ofbeldis.

[Facebook]

Landið verður stjórnlaust, segir Geir….

Ef kosið yrði í vor. En kæri Geir, hvernig fer landið að þegar að kosið er á hefðbundnum tímum? Verður landið ekki stjórnlaust þá líka?

Mér hefur nú sýnst takast bærilega til á kosningarárum og fæ ekki séð að það yrði neitt öðruvísi núna. Þó að þing væri slitið og boðað til kosninga myndi einhverskonar stjórn verða við völd, hvort sem það yrði sú (ó)stjórn sem nú situr, þjóðstjórn eða utanþingsstjórn. Menn myndu ekki bara pakka saman og fara heim.

Augljóst þykir mér af þínum orðum að taktíkin sem beita á sé hræðslutaktík. Væri þér ekki nær að fara að beina sjónum þínum að því sem að heimilin í landinu þurfa að þola útaf efnahagshruninu sem að þinn flokkur á stóran þátt í?  Þarf ekki að skoða hvernig hægt er að koma í veg fyrir að ungt fólk, eins og t.d. ég, flýr land því ansi margir sjá fram á að geta ekki búið hér við þessar aðstæður.

Geir, það er ábyrgðarleysi að starfa í óþökk þjóðarinnar.

[Facebook]

Takk kæru mótmælendur

Mikið vildi ég að ég væri niðri á Austurvelli núna. Samkvæmt því sem að RÚV segir eru rúmlega 2000 manns þarna og það finnst mér alveg hreint frábært á virkum degi. Því miður sit ég fastur í vinnunni verð því að fylgjast með úr fjarlægð.

Vonandi vakna stjórnvöld úr þyrnirósarsvefninum við þetta eða er þetta kannski ekki þjóðin sem er þarna fyrir utan.

[Facebook]

Skammastu þín Ari og skammastu þín fréttastofa stöðvar 2

Í ljósi þeirra lyga sem að fréttastofa stöðvar 2 bar á mig og þau hin, sem að sendu bréf til fjölmiðla og buðumst til að fara af stað með söfnun fyrir skemmdunum á tækjabúnaði stöðvarinnar þrátt fyrir það að ekkert okkar hafi skemmt nokkurn skapaðan hlut á svæðinu, höfum við Agnar vinur minn sent frá okkur eftirfarandi bréf:

Þegar við þrjú sem rituðum andsvar vegna mótmælanna við Hótel Borg á gamlárskvöld, þá datt okkur aldrei til hugar, að Ari Edwald og Stöð 2 myndu bregðast við með svo ógeðfelldum hætti og varð raun. Til að útskýra með andsvarið, þá vorum við þrjú stödd við mótmælin við Borgina inn í portinu, og mótmæltum friðsamlega. Atgangurinn þar endaði eins og fólk þekkir með sprautun piparúða yfir hóp fólks, sem sumt hvert var að halda á brott. Flest okkar sem voru þar á svæðinu höfðu hvorki hugmynd um átök við starfsfólk Stöðvar 2 og flestir ekki heldur hugmynd um að að kapalsgrey hafði verið brennt í sundur né að svo ömurlega skyldi fara að meiðsl yrðu í átökum.

Í framhaldi þá hófst við mikill darraðardans þar sem allir sem voru við mótmælin, voru stimplaðir skemmdarvargar, skríll, hryðjuverkamenn og svo uppáhald okkar:“kommúnistadrullusokkur“ sem svartstakkur nokkur hefur gert að góðu grínslanguryrði.  Ekki voru það bara misvitrir bloggarar og aðrir sem ekki höfðu verið á staðnum, heldur einnig „fréttastofa“ Stöðvar 2, sem hafði ákveðið að notfæra sér mótmælin til að krydda Síldina sem var þegar orðin ónýt vegna ýldubragðs efnahagsástandsins,  í von um að það yrði metáhorf. Eftir að þeim varð ljóst að ýldulyktin hafði aðeins farið á þá eftir þessa misheppnuðu markaðstilraun, þá sigu þeir fljótt í þann ham að hefja aftur þá djöfulgeringu og einstaklega hlutdræga fréttaflutning, sem þeir hafa reynt að draga upp af mótmæla-Jóni  fyrir eiganda sinn, séra Jón Ásgeir.  Ekki nægði þeim það, heldur mætti rauðþrútinn af reiði eða þynnku, forstjóri fyrirtækisins í viðtal hjá „fréttastofunni“ á Nýársdag og krafðist í hroka valdsins, harðari aðgerðir en piparúðun á mótmælendur. Fyrir þá sem ekki vita, þá þýðir það barsmiðar með kylfum, sem myndi hafa þær afleiðingar, að mótmæli og annað, myndu færast yfir á mun harðara stig með jafnvel skelfilegum afleiðingum og nokkuð sem á að forðast.

Okkur ofbauð þessi orð Ara en vorum einnig reið og sár yfir þessum alhæfingum um þau mörg hundruð manns sem mótmæltu við Borgina. Í framhaldi af því kom upp þessi hugmynd að bjóðast til að standa að söfnun fyrir tækjabúnaði Stöðvar 2, en sú upphæð og hvað átti að hafa eyðilagst hafði verið mikið á reiki frá degi til dags. Töldum við því að best væri að fá óháðan aðila til að segja til um skaðann, enda ætti það að vera í samræmi við þá skoðun okkar að algjörlega óháður aðili myndi rannsaka bankahrunið. Um leið ákváðum við að koma gagnrýni okkar á framfæri og þeim skilaboðum að við hefðum komið í friðsamlegum tilgangi til mótmæla, ekki til að valda skaða á neinn hátt né gerðum við slíkt á nokkurn hátt.

Yfirlýsingin birtist svo hjá flestum fréttamiðlum, og í framhaldi þá hafði „fréttastofa“ Stöðvar 2 samband við einn úr hópnum og tók viðtal þar sem spurðar voru nokkrar spurningar um atriði sem komu fram í yfirlýsingunni. Einnig var spurt varðandi óþægindi starfsmanna Stöðvar 2, sem hópurinn hafði samúð og skilning með og var sagt svo. Svaramaður þessi taldi að enn væri von um að „fréttastofan“ notaði gamlar kennslubækur um heiðarlega fréttamennsku en svo var ekki raunin. Í hádegisfréttum Bylgjunnar kom berlega í ljós, lyga- og áróðursblaðamennska að hætti FOX NEWS og TASS-fréttastofunnar gilda á fullu, þegar kom að óvinum valdsins sem slíkir áróðursmiðlar studdu og/eða styðja. Einnig getur hafa spilað inn í, viðkvæmt egó prímadonnu Kryddsíldar og gagnrýnisóþolinn sál forstjórans hafi orði eitthvað viðkvæm. Í hádegisfréttum  Bylgjunnar miðvikudaginn 14. Janúar stundi fréttaþulurinn af áfergju því upp úr sér að mótmælendurnir(þ.e. við) sem eyðilögðu tæki Stöðvar 2, ætluðu að safna fé til að borga skemmdirnar. Örfá valin orð svaramanns voru nýtt, og lyginni klykkt út með forstjóranum Ara Edwald, nær því grátandi krókódílatárum yfir vonsku mótmælanda og endað á yfirgengilega melódramatískri lýsingu á ástandi starfsmanna þar sem hann líkti þeim við fórnarlömb nauðgunar.

Ekki ætlum við að rengja það að starfsmenn sem tuskuðust á við mótmælendur(eða nauðgarana í huga Ara) hafi orðið orðið skelkað og ómótt og eiga samúð og fullan stuðning skilið. Þó má ekki gleyma því að þeir sem stóðu fyrir utan og mótmæltu, urðu einnig margir hverjir fyrir áfalli þegar beitt var piparúða, og hina friðsömu sem urðu skelkaðir þegar hræddir lögreglumenn spreyjuðu af handahófi í hóp fólks og þótti sumum sem að verið væri að ýta saklausum inn í bununa um tíma. Má því fyrir það fyrsta benda „fréttamönnum“ Stöðvar 2, að það eru fleiri hliðar á atburðum en skoðun eiganda eða forstjóra. Einnig má benda þeim á að þegar aðili segist ekki hafa skaðað né ollið skaða, þá er það ekki í valdi „fréttastofu“ að fullyrða annað, án sannana og gæti það flokkast undir gróf meiðyrði.

En ummæli Ara er ei létt að svara, því þessi líkingarmynd hans um fórnarlömb nauðgunar er alveg forkastanleg. Nauðgun er einn af verstu og viðbjóðslegustu glæpum sem til er, og eru ummæli Ara ekkert annað en gengisfelling á því sálarmorði sem framið er, og einnig er einstaklega ógeðfelld athæfi það, að reyna að gera nauðgara, samnefnara við mótmælendur. Erum við alveg fokill yfir því, að vera dregin í sama dilka og slík ómenni, og ætti Ari því að sýna manndóm og biðja fórnarlömb nauðganna afsökunar sem og þá sem hann líkir við nauðgara, og segja upp starfi sínu í iðrunarskyni.

Ef ekki kemur neitt fram í átt til iðrunar af hálfu Ara eða Stöðvar 2, þá teljum við réttast, að taka upp hugmynd Ara og benda fólki á að styrkja Stigamót, Mæðrastyrksnefnd eða öðrum sem munu þurfa aðstoð í því ástandi sem hann hefur átt sinn þátt í að skapa sem „lobby-isti“ atvinnulífsins í SA og Viðskiptaráði Íslands. Eru því mótmælendur við Borgina og mótmælendur almennt auk andstæðinga nauðgana, hvattir til þess að segja upp Stöð 2 og leggja hlut ef ekki heila mánaðaráskrift í sjóð til styrktar þessum aðilum.

En við megum ekki gleyma „fréttastofu“ Stöðvar 2 og sjáum við nú greinilega að okkar synd, var fyrst og fremst að ónáða hana frá meir spennandi hlutum heldur en mótmælendum sem eru fyrir neðan þeirra virðingu og eiga lygar og allt vont skilið. Við skulum því sjálf taka það til okkar og hætta samskiptum við þá, hvetja aðra mótmælendur og mótmælahópa sem „fréttastofan“ fyrirlítur vegna andstöðu þeirra við valdið, aðra meðmælendur andófs og andstæðinga valdsins í orði og riti til að einfaldlega að hundsa frekjulegan fréttamanninn með hrokafullar spurningar þess sem ætlar sér að niðurlægja mótmælandann. Einnig skulum við mótmælendur hætta að senda þeim fréttatilkynningar og sleppa mætingu í innantómt sófaspjall til uppfyllingar um hluti sem „fréttamennirnir“ skilja hvorteð er ekki eða telja yfir sig hafna.

Við slíkt þá myndi „fréttastofa“ Stöðvar 2 gefast meiri tími, til að sinna því sem þeir telja mun fréttnæmara í samfélaginu: líkamsrækt, lýtalækningar og auglýsingagerð fyrir önnur Baugs-fyrirtæki. Ef það gerist of leiðigjarnt og metnaður og heilindi skyldu fyrirhitta „fréttamennina“, þá bendum við þeim á að kynna sér hvernig alvöru blaðamenn starfa í öðrum löndum.

Látum við því þessu mótsvari okkar lokið við lygum og fyrirlitlegum málflutningi þar sem sálarmorð er gengisfellt. Vonandi þurfum við aldrei að ræðast við aftur og getum við ekki sagt að við séum sérlega döpur yfir því. Þau óheilindi að ljúga upp á fólk skemmdarverkum og öðru sem það hefur ekki framið, í ljósi þess að við tókum fram að við ollum engu slíku, hafa skilað því.

Mér finnst ummæli Ara, þar sem að hann líkir því sem að starfsmenn stöðvar 2 (sem nota bene eiga samúð mína alla ef þeir hafa misst svefn útaf þeirri geðshræringu sem að þetta olli þeim) við því að vera nauðgað, sýna hvað Ari er ómerkilegur karakter. Skammastu þín Ari fyrir að láta þetta út úr þér og skammastu þín fréttastofa stöðvar 2 fyrir að ljúga blákalt  upp á okkur að það hafi verið við sem að skemmdum búnaðinn þegar að við tökum það skýrt fram að við gerðum það ekki.

Hvernig á ég annars að fara að skemma allan þennan búnað um leið og ég tek myndir af því sem að fram fer? Þeir sem að trúa því ekki að ég hafi í raun verið að taka myndir þarna geta farið inn á vefsíðu mína, selkot.com, og skoðað myndirnar.

[Facebook]

Opinn borgarafundur, sá áttundi í röðinni

Á morgun, mánudag verður Opinn borgarafundur, sá áttundi í röðinni. Fundurinn er mjög áhugaverður í þetta skiptið því nú verður fjallað um íslanskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunar og farið yfir hvað gerðist og hvers vegna það gerðist.

Við fáumað heyra um þetta meðal annars frá sjónarhóli erlendra aðila en þau Robert Wade, prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics, og Raffaella Tenconi, hagfræðingur hjá Straumi fjárfestingabanka í London, verða á meðal ræðumanna. Aðrir ræðumenn verða Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, Stjórnsýslufræðingur og Herbert Sveinbjörnsson, heimildargerðarmaður og aðgerðarsinni.

Fyrir þá sem ekki vita þá  er Robert Wade sá sem að skrifaði grein í Financial Times í júlí á síðasta ári þar sem að hann varaði við hruni bankanna. Þessari grein var svarað af hörku af varðhundum bankanna en við vitum öll í dag hver hafði rétt fyrir sér.

Einnig verður á fundinum sýndur nokkurskonar annáll borgarafundanna sem að Herbert hefur tekið saman en brot úr þessum annáli var einmitt sýndur í Silfri Egils í dag og verð ég að segja að það var virkilega ánægjulegt að sjá ljósmyndir sem að ég hef tekið á fundunum rúlla yfir skjáinn í upphafi myndbrotsins og endaði það á mynd af troðfullum stóra salnum í Háskólabíói áður en að valin atriði af fundunum byrjuðu.

Ég hvet sem allra flesta til að mæta á þennan fund sem að reikna má með að verði mjög fræðandi.

Fundarefni

Íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar, spurt er hvað fór úrskeiðis og fjallað verður um hriplekt lagaumhverfi og veikar eftirlitsstofnanir.


Frummælendur

  • Robert Wade – prófessor í stjórnmálahagfræði við London School of Economics
  • Raffaella Tenconi – hagfræðingur hjá Straumi fjárfestingarbanka í London
  • Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir – stjórnsýslufræðingur
  • Herbert Sveinbjörnsson – heimildamyndagerðarmaður og aðgerðarsinni

Auk þeirra hefur formönnum stjórnmálaflokkanna og Viðskiptaráði Íslands verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum.


Fyrirkomulag

Fundarform verður með sama sniði og áður, þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga. Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig svo gott er að vera vel undirbúinn.

Rétt er að taka fram að enskumælandi frummælendum verður gert kleift að svara spurningum sem bornar eru fram á íslensku með aðstoð túlks, og erindi þeirra og svör verða sömuleiðis þýdd á íslensku.

Spyrjum, hlustum og fræðumst.

Sýnum samstöðu og borgaralega virkni og fjölmennum á fundinn.

Opinn borgarafundur #8 – frekari upplýsingar

[Facebook]

Mín sýn af fundinum í gær

Í gærkvöldi héldum við í borgarafundarhópnum opinn borgarafund um mótmæli. Fundurinn var haldinn í Iðnó, sem var troðið út að dyrum, og eins og venjan er  hjá okkur voru fjórir frummælendur og svo nokkrir í panel til að svara spurningum úr sal.

Frummælendur í gær voru Hörður Torfason, sem sagði stuttlega frá mótmælunum á Austurvelli, framkvæmd þeirra og þeirri miklu vinnu sem liggur á bakvið þetta en hann sagðist ekki hafa unnið við annað undanfarna þrjá mánuði rúma en að skipuleggja þessa fundi. Eva Hauksdóttir flutti svo frábæra ræðu um aðgerðir aðgerðarsinna og hvað borgaraleg óhlýðni væri. Á eftir henni kom svo ónefndur aðgerðarsinni, sem kallaði sig bara Grím enda var hann með grímu, og sagði frá því hvers vegna hann væri að mótmæla og tók hann það skýrt fram að hann gæti bara talað fyrir sig sjálfan en ekki alla aðgerðarsinna. Var ræða hans mjög fín þó svo að maður hafi kannski ekki verið sammála öllu í henni enda engin ástæða til að allir séu sammála um allt. Að lokum var það svo fulltrúi lögreglunnar, Stefán Eiríksson lögreglustjóri í Reykjavík, sem að sagði frá hlutverki lögreglunnar við svona mótmæli, hverjar skildur hennar væri og þar fram eftir götunum.

Eftir að ræðumenn höfðu lokið máli sínu var opnað fyrir spurningar úr sal og á örskömmum tíma var mælendaskráin orðin það löng að útséð var með að allir kæmust að. Þannig bað ég t.d. mjög snemma um orðið en samt var ég með þeim síðustu til að fá að spyrja og voru nánast jafn margir eftir á mælendaskrá þegar að fundi lauk eins og þeir voru sem náðu að spyrja. Uppákoma trúðsins í jólasveinabúningnum, Ástþórs Magnússonar, hjálpaði reyndar ekki til því tíminn sem fór í það fíaskó hefði rúmað 2-3 spurningar til viðbótar úr sal.

Það má samt segja að uppátæki Ástþórs hafi verið lán í óláni. Fram að því var greinileg spenna í salnum. Hinar mismunandi fylkingar mótmælenda voru tortryggnir í garð hvers annars, að maður tali nú ekki í garð lögreglunnar. En þegar allt stendi í óefni vegna uppákomu Ástþórs steig Hörður Torfa í pontu og róaði salinn með því að benda á fáránleika þess að láta atvik sem þetta komast á milli okkar og stuðla að meiri sundrungu. Við þetta virtust menn átta sig á því að mótmælendur myndu ná meiri árangri með samstöðu þrátt fyrir ólíkar baráttuaðferðir. Staðreyndin er nefninlega sú að við erum öll að berjast fyrir sama málstaðnum. Strax eftir þetta fengu svo þeir sem voru í panelnum að tala aðeins og stappaði það stálið enn frekar í mótmælendur og studdi við orð Harðar.

Annað sem að mér fannst fundurinn skila var ákveðinn skilningur á milli lögreglu og mótmælenda. Eitt af því sem að skapaði þá sátt og þann skilning sem að varð á milli þessara tveggja hópa var tillaga sem að Heiða B. Heiðars kom með á fundinum. Lagði hún til að í aðstæðum eins og komu upp við Hótel Borg á gamlársdag myndi lögreglan tilnefna 1-2 menn til að tala við og semja við mótmælendur í stað þess að grípa til harðari aðgerða á borð við notkun piparúðans alræmda sem svo óspart var notaður þennan dag. Tóku þeir Stefán Eiríks og Geir Jón Þórisson, sem var þarna líka, vel í þessa tillögu og á ég von á því að samskipti lögreglu og mótmælenda verði með öðrum hætti í framtíðinni.

Þetta var því að mínu mati mjög vel heppnaður fundur þrátt fyrir allar uppákomur. Hetja kvöldsins var tvímælalaust Hörður Torfason og stóð hann þarna vel undir nafnbótinni maður ársins. Á hann miklar þakkir skildar fyrir að ná að róa fundinn og stuðla þannig að þeirri samtöðu sem að mér fannst myndast milli þeirra hópa mótmælenda sem að þarna voru mættir.

Myndir af fundinum verða settar inn á selkot.com um leið og ég er búinn að vinna þær.

[Facebook]

Rangfærslur í fréttinni

Aldrei þessu vant ætla ég ekki að leggja dóm á það að Ísraelski herinn hafi svarað árás frá Líbanon því miðað við frétt um þetta mál á BBC er þetta ekki eins slæmt og það sem lesa má úr frétt mbl.is.

Mbl.is segir að ísraelski herinn hafi skotið inn í norðanverðan hluta Líbanon. Þetta er einfaldlega ekki rétt og skil ég ekki hvernig fréttamaður mbl.is hefur fengið þetta út. Hið rétta, samkvæmt frétt bbc, er að flugskeytum var skotið á norður Ísrael frá suðurhluta Líbanon. Þetta voru þrjú Katyusha flugskeyti og lenti eitt þeirra í eða nærri Nahariya og særðust tveir lítillega við þetta.

Ísraelski herinn svaraði með stórskotaárás á staðinn sem að þeir segja að flugskeytunum var skotið og samkvæmt heimildum í Líbanon lenntu alla vega fimm sprengjur inn í Líbanon nærri landamærunum en eingann sakaði.

Það er því rangt hjá mbl.is að ísraelski herinn hafi skotið inn í norðanverðan hluta Líbanon.

Að því sögðu fordæmi ég harðlega aðgerðir ísraela á Gaza og hvet íslenska ríkið eindreigið til að slíta stjórnmálasamskiptin við Ísrael. Að sama skapi fordæmi ég það harðlega þegar að Hamasliðar nota óbreytta borgara sem mannlega skildi.

Viðbót: Ég sé að mbl.is tvítekur vitleysuna. Hún er bæði í þessari frétt sem bloggfærslan er tengd við og líka í þessari frétt. Það sem meira er þá bera þeir fyrir sig frétt í Haaretz en í þeirri frétt er ekki minnst einu orði á að flugskeytum hafi verið skotið á norðanverðan hluta Líbanon. Ég leyfi mér því að efast stórlega um enskukunnáttu þess sem skrifar þessar fréttir.

[Facebook]

Opinn borgarafundur á næsta fimmtudag

OPINN BORGARAFUNDUR #7

Í Iðnó, fimmtudaginn 8. janúar kl 20-22.

Fundarefni: Mótmæli (ólík viðhorf, ólíkar aðferðir, sömu markmið?), aðferðafræði mótmæla og borgaraleg óhlýðni.

Frummælendur

· Hörður Torfason – Raddir fólksins

· Eva Hauksdóttir – Aðgerðasinni

· NN anarkisti

· Stefán Eiríksson – Lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins

Auk þeirra munu Katrín Oddsdóttir, laganemi og talsmaður Neyðarstjórnar Kvenna, Sigurlaug Ragnarsdóttir fyrir hönd Nýrra tíma og Þórhallur Heimisson, prestur, taka þátt í pallborðsumræðum ásamt fleirum og svara spurningum viðstaddra.

Þá hefur Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra sérstaklega verið boðin þátttaka í pallborðsumræðunum.

Hvetjum ríkisstjórn Íslands og alla alþingismenn til að mæta á svæðið, hlusta á sína kjósendur og vera með í umræðunni. Hvetjum ennfremur alla fjölmiðlamenn og konur til að mæta og taka þátt.

Fyrirkomulag

Fundarform verður með sama sniði og áður, þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og fundargestir úr sal fá að tjá sig eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga. Hver aðili hefur tvær mínútur til að tjá sig svo gott er að vera vel undirbúinn.

Við hvetjum fundargesti til þess að mæta tímanlega vegna takmarkaðs húsrýmis.
Sýnum borgaralega virkni og fjölmennum á fundinn. Spyrjum, hlustum og fræðumst.

P.S

Í ljósi atburðanna fyrir botni Miðjararhafs hef ég tekið tónlistarspilarann í notkunn og mun setja þar lög sem tengja má við það sem þar er að gerast. Fyrsta lagið sem þangað fer er Road to Peace með Tom Waits

[Facebook]