Góður dagur í dag og vonandi verður hann enn betri
Þetta er búinn að vera alveg ljómandi dagur í dag. Ég vaknaði tiltölulega snemma og eftir smá skrens á internetinu rölti ég yfir á Kjarvalsstaði til að kjósa. Aldrei þessu vant var ég ekki í neinum vafa um það hvað ég ætlaði að kjósa og að sjálfsögðu var það Borgarahreyfingin sem merkt var við, X við O.
Eftir að hafa kosið fór ég ásamt félaga mínum yfir í Skeifu í fæðuleit og vel mettir kíktum við síðan aðeins í kaffi til Helgu vinkonu okkar á kosningaskrifstofu Frjálslyndaflokksins.
Þegar þessari kurteisisheimsókn til andstæðingsins var lokið drifum við okkur niður á Laugaveg á kosningaskrifstofu Borgarahreyfingarinnar. Þar var heldur betur líf og fjör, troðið út að dyrum og allir í glimrandi fínu stuði. Ég þvældist þarna aðeins fyrir fólkinu og tók myndir í gríð og erg.
En að lokum fór svo að góða veðrið náði tökum á mig og ég bara varð að fara heim og sækja hjólið. Í svona veðri eins og er búið er að vera í dag verður maður hreinlega að taka hringinn og kíkja niður á torg og heilsa þar upp á liðið.
Nú er svo bara kosningavakan eftir og vonandi verður útkoman úr kjörkössunum í samræmi við, og helst betri, en skoðanakannanir hafa verið að sýna. Kannski að maður endi bara á því að skála í XO fyrir X-O.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)