Úbbs, þetta var bara misskilningur
Flestir hafa heyrt af frægðarför félaganna úr sauðskinnsflokknum til frænda vorra í Noregi hvar þeir ræddu við mann og annan um að lána okkur lánlausum Íslendingum. Þegar heim var komið börðu þeir sér á brjóst og komu nánast eins og riddararnir á hvítum hestunum og tilkynntu að þeir væru einir og óstuddir búnir að bjarga efnahag landsins.
En fljótlega fór hetjuímyndin að dofna. Jóhanna Sigurðardóttir ákvað að kanna hvort að þetta væri rétt sem að þeir væru að segja og kom þá í ljós að Jens Stoltenberg kom af fjöllum og kannaðist hann ekkert við það að hægt væri að lána meira en áður hafði verið talað um. Stolt þeirra sauðskinnsfélaga var að sjálfsögðu sært eftir þetta en eins og sönnum sveitadrengjum sæmir voru þeir þó með svör á reiðum höndum. þetta var bara allt eitt stórt samsæri samfylkingarinnar og hafði Jóhönnum ekki munað um að taka kollega sinn, Jens, á klofbragði og plataði hann og neyddi til að neita því að hægt væri að fá þetta risalán.
Eins og nafna sín af Örk tók Jóhanna á mótlætinu af festu og birti samskipti sín við Jens til að sýna það og sanna að hún hefði ekki tekið ráðherrann norska glímutökum en hinir sauðmeinlausu sveitadrengir virtust vera eitthvað örlítið lesblindir því þeir virtust lesa já þar sem stóð nei. Jóhanna hafði sko víst snúið Stoltenberg niður.
En í morgunn komu enn nýjar fréttir frá frændum vorum í Noregi. Þingbóndinn Per Olaf Lundteigen hafði víst ekkert verið að lofa neinu láni. Hann hafði bara verið að nota það sem dæmi um það hvað Ísland væri í djúpum skít og blautum. Og það sem meira er, hann var ekki að segja þetta sem fulltrúi norska stórþingsins heldur bara sem hann sjálfur, bóndi í Norge sem að vill svo skemmtilega til að situr á þingi.
Það lítur því út fyrir að hetjurnar sjálfar, sauðirnir úr sveitinni, hafi annað hvort verið að misskilja hlutina hrapalega og ef svo er þá ættu þeir nú blessaðir að viðurkenna það bara og segja úbbs, við skildum kannski ekki alveg syngjandann í norðmanninnum, eða að þeir séu ekki eins saklausir og þeir virtust í fyrstu vera heldur séu þeir úlfar í sauðagæru sem sá frá á að fá að glefsa í gimbrina í forsætisráðuneytinu og komast þannig sjálfir að kjötkötlunum. Ef hið síðarnefnda er rétt, sem ég hallast eiginlega að, þá eiga þessir blessuðu drengir að sjá sóma sinn í að taka pokann sinn og láta ekki sjá sig nálægt stjórn landsins næstu 50 árin eða svo.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)