Jólagjöf til námsmanna
Mennt er máttur sagði enski heimspekingurinn Francis Bacon. En ríkisstjórn Íslands og hið háa alþingi virðast ekki alveg vera sammála honum, alla vega ekki miðað við niðurskurð sem að hefur átt sér stað í menntakerfinu. Og nú rétt fyrir jól fá svo framhaldsskólanemar sem stundað hafa nám í kvöldskóla aldeilis rausnarlega jólagjöf frá stjórnvöldum. Þreföldun á skólagjöldum í kvöldskóla fór nánast umræðulaust í gegnum alþingi og er nú gjaldið komið í 7500 krónur á einingu en var áður 2500 krónur.
Það verður að segjast eins og er að þessi hækkun er algjörlega glórulaus og sú tekjuaukning sem að þetta á að hafa í för með sér mun alls ekki verða eins og stjórnvöld ætlast til því mjög margir munu hrekjast frá námi vegna kostnaðar. Ástæðan fyrir þessari hækkun er sú að fjárframlög til kvöldnáms er skorið niður í fjárlögum og því þurfa framhaldsskólar að brúa bilið með hækkun námsgjalda.
Og umræðan um þetta virðist hafa verið brandari. Samkvæmt heimasíðu alþingis var aðeins einn aðili sem talaði í fyrstu umræðu, þ.e. flutningsmaður frumvarpsins, Katrín Jakobsdóttir. Í annari umræðu voru þeir reyndar sex sem töluðu en fjórir þeirra fóru í pontu til að ræða fundarstjórn. Í þriðju og síðustu umræðu tók svo ekki einn einasti þingmaður til máls.
Nú verð ég að játa það á mig að ég er pínulítið hættur að skilja stjórnvöld (ekki það að ég hafi botnað mikið í þeim hér áður fyrr). Voru þeir sem urðu atvinnulausir hvattir til að fara í nám? Áttu þeir ekki að reyna að auka við þekkingu sína svo þeir væru betur undir það búnir að fara aftur á vinnumarkaðinn þegar betur árar? Þessar aðgerðir eru nú ekki beint til þess fallnar að laða menn í nám.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)