Kæra þjóð, viltu fyrirgefa mér

Í dag skammast ég mín og vil biðja þjóðina fyrirgefningar. Ég ætlaði ekki að gera þetta en því miður umbreytast góðar meiningar stundum í andhverfu sína og það gerðist í þessu tilfelli.
Ég tók þátt í því að stofna stjórnmálaflokk í vor. Einn megin tilgangurinn með þessu var að reyna að ná inn fólki á þing og stuðla svo að heiðarlegum og opnum stjórnmálum. Við vildum berjast gegn hvers konar baktjaldamakki og hrossakaupum. Sandkassaleikurinn sem stundaður er í Alþingishúsinu er eitthvað sem við vildum ekki taka þátt í. Málefnin áttu að skipta máli en ekki hver sagði hvað.
Vopnuð þessum hugsjónum örkuðum við af stað og hófum kosningabaráttuna. Við gerðum okkur vonir um að ná inn einum til tveimur þingmönnum en reyndin varð fjórir. Það var almenn ánægja með þennan árangur og skipti þá engu hverjir það voru sem komust á þing þar sem þingmennirnir áttu fyrst og fremst að vera framlenging okkar umbjóðenda í málefnum okkar. En Adam var ekki lengi í paradís. Ekki var liðinn langur tími þar til hluti þingmannanna lenti upp á kannt við stjórn flokksins. Reyndar var það að einhverju leiti hafið fyrir kosningar en það náði nýjum hæðum þegar ljóst var að þessir einstaklingar hefðu náð inn á þing.
Fljótlega eftir að þingstörf hófust fóru fram fyrstu hrossakaupin. Icesave átti að afgreiða með hótun um að styðja ekki aðildarumsókn að ESB, eitthvað sem að frambjóðendur voru allir sammála um að ætti að fara í og töluðu meira að segja um það í sjónvarpsviðtölum fyrir kosningar. Einn af þingmönnunum, Þráinn Bertelsson, vildi reyndar ekki taka þátt í svona hrossakaupum þvert á hugsjónir flokksins og fyrir vikið var hann útskúfaður af hinum þingmönnunum og náði það hámarki þegar að samflokkskona hans sendi fyrir “mistök” tölvupóst á óviðkomandi aðila þar sem að hún gefur það í skyn að Þráinn sé með heilahrörnunarsjúkdóm. Þetta varð á endanum til þess að hann sagði sig úr þinghópnum og er nú óháður þingmaður.
Á haustmánuðum klufu þingmennirnir sig úr Borgarahreyfingunni þegar þeir sáu fram á að fá ekki að vera eins og frekir krakkar í sælgætisbúð og fá allt upp í hendurnar eins og þeir vildu, óháð vilja félagsmanna. Þeir vildu ekki einu sinni reyna að miðla málum eða koma að því að laga til ný lög BH með breytingartillögum á landsþinginu. Frekar ruku þau á dyr og vældu í fréttamönnum yfir nokkrum liðum í lögunum. Þegar uppi var staðið var síðan öllum þeim atriðum sem þau kvörtuðu yfir í lagadrögunum breytt.
Upp úr þessu varð til nýr flokkur. Þau voru nú reyndar ekki hugmyndaríkari en það að þau gátu ekki fundið frumlegra nafn en Hreyfingin og reyndu þannig að nýta sér þá athygli sem að Borgarahreyfingin var þegar búin að fá. En hugsjónirnar virðast þau hafa skilið eftir í BH því enn stunda þau pólitíska skrípaleiki. Þau virðast algjörlega hafa gleymt öllum fyrirætlunum um heiðarlega og hreinskilna pólitík. Frekar stunda þau skotgrafarpólitík á borð við málþófið í Icesave umræðunni sem að er búin að vera í gangi síðustu daga. Hefur það eitthvað með heiðarleg stjórnmál að gera að búa til stundaskrá yfir það hver eigi að segja hvað og hverjir eigi að svara?
Ég vil því biðja þig, kæra þjóð, afsökunar á því að hafa átt þátt í því að koma þessu liði inn á þing. Ég vildi, og vil enn, fá heiðarlega stjórnmálamenn sem láta málefnin ráða en ekki hver segir hvað. Þar sem mál eru afgreidd þvert á alla flokkapólitík og menn styðja góð málefni óháð flutningsaðila. Þar sem hagsmunir þjóðarinnar eru hafðir að leiðarljósi en ekki hagsmunir flokksins. Þar sem sérhagsmunapot þekkist ekki heldur sé faglega staðið að öllum ákvörðunum og ráðningum. Þar sem það skiptir ekki öllu máli að vera við völd heldur sé aðalmálið að láta gott af sér leiða. Þar sem stjórnarandstaðan veitir stjórninni eðlilegt aðhald á málefnalegan hátt og þar sem stjórnin er tilbúin til að hlusta á það sem stjórnarandstaðan hefur að segja og tekur tillit til þess ef rökin eru góð og rétt.
Þetta er kannski óraunhæft en ég á mér þennan draum og því vil ég biðjast afsökunar á því að hafa ekki gert betur í tilraun minni við að láta þennan draum rætast.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)