Afhverju gekk ég í Sniglana?

Snemma árs 2006 tók ég eina bestu ákvörðun lífs míns. Ég ákvað að læra á mótorhjól. Þetta er sú ákvörðun, ásamt því að flytja til Reykjavíkur og fara í skóla, sem hefur breytt mínu lífið hvað mest. Áður en ég tók þessa ákvörðun að læra á mótorhjól voru hjólin fyrst og fremst eitthvað spennandi og flott sem að maður sá annað slagið. En eftir að ég tók prófið og keypti mér hjól hefur þetta breyst í því að vera stór og mótandi þáttur í lífi mínu. Sumarið er nú orðið meira og minna skipulagt í kringum hjólamennskuna.

Þegar ég var loksins búinn að taka prófið fór ég að velta hlutunum aðeins fyrir mér. Ég vissi um Sniglana og kannaðist aðeins við sögu þeirra. Ég fór að skoða vefsíðu Sniglanna og sá að þar var á ferðinni batterí sem að lét sig hagsmuni hjólafólks varða. Þar sem að maður var nú búinn að heyra það að margir litu nánast á hjólafólk sem annars flokks aðila í umferðinni, tryggingarfélögin væru óbilgjörn (sem maður fann fyrir sjálfur þegar hjólið var tryggt) og þar fram eftir götunum vildi ég leggja mitt af mörkum við að bæta úr þessu. Það minnsta sem ég gæti væri að ganga í Bifhjólasamtök Lýðveldisins, Snigla, enda væru það í raun einu hagsmunasamtök hjólafólks.

Eftir að hafa tekið þessa ákvörðin, að ganga í Sniglana, og stoltur farinn að styðja við bakið á hagsmunabaráttu hjólafólks, fór ég að kíkja á félagsfundi. Ég fór að kynnast betur starfi Sniglanna og hvað þeir hafa verið að gera fyrir hagsmuni hjólafólks. Ég hef líka kynnst mistökum sem Sniglar hafa gert í baráttunni eins og t.d. hlífðarfatafrumvarpið ógurlega, sem aldrei hefði átt að ná alla leið. Sem betur fer lítur út fyrir að það hafi tekist að leiðrétta þau mistök en kostaði það samt þrotlausa vinnu umferðarnefndar Snigla.

Í tengslum við vinnuna við að leiðrétta hlífðarfatafrumvarpið fór ég að kynna mér hvernig staðið væri að þessum málum í löndunum í kringum okkur. Þar var alltaf það sama upp á teningnum. Hagsmunasamtök nágrannalanda okkar eru í FEMA. Ég fór því að kynna mér FEMA af einhverri alvöru, hvað þau standa fyrir og hvað þau hafa gert. Eftir því sem ég kynnti mér FEMA betur hugsaði ég alltaf meir og meir með mér, hvers vegna í ósköpunum erum við ekki meðlimir? Við tilheyrum Evrópu og erum í EES þannig að lög og reglugerðir EU rata alltaf á endanum hingað. Með því að vera í FEMA værum við komin með möguleikann á því að hafa áhrif á þessi lög strax í  upphafi. Við værum líka komin með sterkan þrýstihóp á bakvið okkur í baráttunni við yfirvöld hér heima.

En svo ég svari nú spurningunni minni þá gekk ég í Sniglana fyrst og fremst af því að ég vildi leggja mitt af mörkum í baráttunni fyrir hagsmunum hjólafólks. Ég tel að Sniglarnir, sem samkvæmt ákvæðum í lögum samtakanna, eru hagsmunasamtök, eigi að stíga skrefið til fulls og skilgreina sig endanlega sem hagsmunasamtök en ekki klúbbur. Sem hagsmunasamtök er ég líka á þeirri skoðun að Sniglarnir eigi að starfa með öðrum hagsmunasamtökum í evrópu og besta leiðin til þess er að ganga í FEMA. Þannig væru Sniglar orðnir mun betur í stakk búnir til að berjast fyrir málefninu og með aðgengi að gögnum FEMA þyrftu þeir ekki alltaf að finna upp hjólið upp á nýtt.

Gunnar Gunnarsson
#1837

Pistill þessi er líka inn á sniglar.is

[Facebook]

Veruleikafirrtir Íslendingar

Eftir jarðskjálftan á Haiti hafa margir bloggarar farið hamförum og viljað ólmir fara að nýta sér rústabjörgunarsveitina, sem send var á vettvang, í pr æfingar fyrir alls ótengt mál, nefninlega IceSave. Blaðamenn hafa sumir hverjir fallið í þessa gildru auk þess sem fréttamat íslenskra fréttamanna er oft ansi brenglað. Þannig var aðalmálið að íslenska sveitin skildi vera með þeim fyrstu sem mætti á svæðið og það virtist meira að segja skyggja á þá staðreynd að  miklar hörmungar höfðu gengið yfir Haiti.

En komment sem ég sá á blogginu hjá Agli Helga er eitt það sóðalegasta sem ég hef séð í þessu samhengi. Ég er búinn að sjá marg misgáfulegt eins og t.d. fréttina hjá Pressunni en sú frétt er eiginlega bara hátíð við hliðina á þessu kommenti.

Kommentið er sem hér segir:

“Fólk hefst við úti á götum. Út um allt eru rotnandi lík. Matur og vatn er af skornum skammti. Hætta er á farsóttum. Vanmátturinn getur snúist upp í andúð á björgunarsveitum. Einnig er hætta á að glæpaöfl gangi á lagið, fari að nærast á ástandinu með ránum og gripdeildum.”

Þetta verður verra hér ef við samþyggjum IceSave.

Menn sem láta svona út úr sér eiga að skríða ofan í djúpa holu og ekki láta sjá sig aftur fyrr en þeir átta sig á því að siðaðir menn segja ekki svona lagað. Nógu lágt hafa menn nú lagst í allri IceSave umræðunni (ef umræðu skildi kalla) þó svo að menn séu ekki að líkja mögulegu ástandi sem verður ef IceSave verður samþykkt við hörmungarnar sem þarna eiga sér stað. Fátæktin og ömurlegheitin voru víst nóg þarna fyrir.

Svei þér.

http://silfuregils.eyjan.is/2010/01/15/haiti-dagur-thrju-eftir-skjalfta/#comments
[Facebook]

Áramótableikjan

Um hver áramót hittist vinahópurinn og borðar áramótasteikina saman. Venjan er sú að hver og einn leggi eitthvað til. Húsráðendurnir sjá um kalkúninn og meðlætið með honum. Einhverjir koma með vínið með matnum og svo sér einhver um eftirréttinn. Undanfarin ár hef ég, í samvinnu við Agga vin minn, séð um forréttinn. Við reynum alltaf að finna upp á einhverju nýju og alltaf reynum við að hafa einhverskonar fisk til að vega upp á móti kalkúninum.

Í ár varð fyrir valinu að hafa steikta bleikju. Eftir að hafa gramsað aðeins á netinu fann ég uppskrift á mbl.is sem mér leist mjög vel á og ákvað ég að láta vaða á að nota hana. Skemmst er frá því að segja að þetta heppnaðist mjög vel og rann bleikjan ljúflega niður.

En hér kemur uppskriftin fyrir þá sem vilja prófa.

Steikt bleikja undir stökku brauði

Fyrir 4

Hráefni

  • 800g Bleikjuflök (roð og beinlaus)
  • 4 stk brauðsneiðar
  • 2 stk eggjarauða
  • 3msk apíkósusulta
  • 3msk soyasósa
  • 1 tsk chilisósa(eða fínt saxaður chili)
  • 1 tsk hvítlaukur (fínt saxað)
  • 1 tsk sesamolía
  • 1 msk kóríander (fínt saxað)
  • 1/2 lime limesafi

Aðferð

Skerið skorpu af brauðsneiðum og rúllið yfir það með kökukefli þar til að brauðið verður eins þunnt og hægt er.
Skerið bleikjuna niður í bita og penslið með eggjarauðunni og kryddið með salti og pipar, steikið í olíunni á heitri pönnu á brauðhliðinni fyrst.
Í sósuna er öllu blandað vel saman og smakkað til með salti og pipar. Borið fram með góðu salati.

[Facebook]