Veruleikafirrtir Íslendingar
Eftir jarðskjálftan á Haiti hafa margir bloggarar farið hamförum og viljað ólmir fara að nýta sér rústabjörgunarsveitina, sem send var á vettvang, í pr æfingar fyrir alls ótengt mál, nefninlega IceSave. Blaðamenn hafa sumir hverjir fallið í þessa gildru auk þess sem fréttamat íslenskra fréttamanna er oft ansi brenglað. Þannig var aðalmálið að íslenska sveitin skildi vera með þeim fyrstu sem mætti á svæðið og það virtist meira að segja skyggja á þá staðreynd að miklar hörmungar höfðu gengið yfir Haiti.
En komment sem ég sá á blogginu hjá Agli Helga er eitt það sóðalegasta sem ég hef séð í þessu samhengi. Ég er búinn að sjá marg misgáfulegt eins og t.d. fréttina hjá Pressunni en sú frétt er eiginlega bara hátíð við hliðina á þessu kommenti.
Kommentið er sem hér segir:
“Fólk hefst við úti á götum. Út um allt eru rotnandi lík. Matur og vatn er af skornum skammti. Hætta er á farsóttum. Vanmátturinn getur snúist upp í andúð á björgunarsveitum. Einnig er hætta á að glæpaöfl gangi á lagið, fari að nærast á ástandinu með ránum og gripdeildum.”
Þetta verður verra hér ef við samþyggjum IceSave.
Menn sem láta svona út úr sér eiga að skríða ofan í djúpa holu og ekki láta sjá sig aftur fyrr en þeir átta sig á því að siðaðir menn segja ekki svona lagað. Nógu lágt hafa menn nú lagst í allri IceSave umræðunni (ef umræðu skildi kalla) þó svo að menn séu ekki að líkja mögulegu ástandi sem verður ef IceSave verður samþykkt við hörmungarnar sem þarna eiga sér stað. Fátæktin og ömurlegheitin voru víst nóg þarna fyrir.
Svei þér.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)
15/01/2010
Uss us uss….firringin.
16/01/2010
Það er komið svona “þriðja ríkis syndrome” í suma, sigur skal vinnast hver sem kostnaðurinn kann að verða. Siðferðislega og fjárhagslega