Bushwacked

BushwhackedFyrsta bókin sem að ég ætla að skrifa aðeins um er bókin Bushwhaced: Life in George W. Bush’s America eftir Molly Ivins og Lou Dubose.

Í þessari bók er farið yfir fyrstu ár GeeDubya Bush sem forseti Bandaríkjanna og þau borin saman við árin sem að hann var ríkisstjóri í Texas. Í henni er farið ansi nákvæmlega ofan í saumana á hinum ýmsu “góðverkum” sem að Bush stjórnin hefur staðið fyrir og hvaða áhrif þau hafa haft fyrir hinn almenna borgara í Bandaríkjunum.

Meðal þess sem að fjallað er um í bókinni er hið svokallaða No child left behind kerfi sem að Bush innleiddi í skólakerfið í Texas og er nú að koma á um öll Bandaríkin. Þetta ágæta kerfi hefur öðru fremur stuðlað að því að mun fleiri börn eru skilin eftir heldur en var áður en það var tekið í notkun því að fjárframlög eru tengd við árangur skólanna og því er það nú í hag skólans að halda börnum í næst efsta bekk ef að möguleikarnir á því að þau útskrifist úr efsta bekk eru ekki þeim mun betri.

Einnig er sýnt fram á það í bókinni hvernig Bush stjórnin hefur markvisst skorið niður það fé sem að fer í að borga niður kyndingu hjá þeim sem að minnst hafa á milli handanna á köldustu svæðum Bandaríkjanna. Þessi niðurskurður hefur gert það að verkum að margir sem að minna meiga sín hafa hreinlega ekki efni á að kynda húsin sín sem að hefur síðan leitt til þess að menn hafa hreinlega frosið í hel.

Sú frásögn sem að sló mig samt einna mest í þessari bók er af því hvernig fór fyrir lögunum um vinnuvistfræði (aðbúnað á vinnustað og þar fram eftir götunum). Eftir 12 ára þrotlausa vinnu við að reyna að berja saman þessi lög, með tilheyrandi nefndarfundum og sérfræðiálitum, voru þau loksins tilbúin. En þegar að lögin voru loksins tilbúin þá vildi svo “skemmtilega” til að Repúblikanar voru komnir með völd í þinginu og á aðeins tíu tímum tókst þeim að þurka alla þessa vinnu út. Og Bush bætti um betur þegar að hann réð Eugene Scalia, manninn sem að lobbyaði sem mest gegn þessum lögum, í starf solicitor of labor (er ekki með íslenska heitið á hreinu). Þarna er greinilega verið að hugsa um hinn almenna verkamann (og hvernig best er að halda honum niðri).

Þessi bók er mjög holl og góð lesning, bæði fyrir þá sem að eru vinstra megin við miðju í pólitíkinni eins og ég því að hún sýnir fram á það svart á hvítu að það sem að við höfum verið að segja um Bush stjórnina á við rök að styðjast, og ekki síst fyrir þá sem að eru til hægri því að þá opna þeir kannski augun fyrir því að stjórnlaus einstaklingshyggja (eða fyrirtækjahyggja eins og í Bandaríkjunum) er ekkert endilega af hinu góða. Menn verða að hugsa um hag náunganns við hlið sér líka.

diten-e-mire

[Facebook]