Veruleikafirrtir Íslendingar

Eftir jarðskjálftan á Haiti hafa margir bloggarar farið hamförum og viljað ólmir fara að nýta sér rústabjörgunarsveitina, sem send var á vettvang, í pr æfingar fyrir alls ótengt mál, nefninlega IceSave. Blaðamenn hafa sumir hverjir fallið í þessa gildru auk þess sem fréttamat íslenskra fréttamanna er oft ansi brenglað. Þannig var aðalmálið að íslenska sveitin skildi vera með þeim fyrstu sem mætti á svæðið og það virtist meira að segja skyggja á þá staðreynd að  miklar hörmungar höfðu gengið yfir Haiti.

En komment sem ég sá á blogginu hjá Agli Helga er eitt það sóðalegasta sem ég hef séð í þessu samhengi. Ég er búinn að sjá marg misgáfulegt eins og t.d. fréttina hjá Pressunni en sú frétt er eiginlega bara hátíð við hliðina á þessu kommenti.

Kommentið er sem hér segir:

“Fólk hefst við úti á götum. Út um allt eru rotnandi lík. Matur og vatn er af skornum skammti. Hætta er á farsóttum. Vanmátturinn getur snúist upp í andúð á björgunarsveitum. Einnig er hætta á að glæpaöfl gangi á lagið, fari að nærast á ástandinu með ránum og gripdeildum.”

Þetta verður verra hér ef við samþyggjum IceSave.

Menn sem láta svona út úr sér eiga að skríða ofan í djúpa holu og ekki láta sjá sig aftur fyrr en þeir átta sig á því að siðaðir menn segja ekki svona lagað. Nógu lágt hafa menn nú lagst í allri IceSave umræðunni (ef umræðu skildi kalla) þó svo að menn séu ekki að líkja mögulegu ástandi sem verður ef IceSave verður samþykkt við hörmungarnar sem þarna eiga sér stað. Fátæktin og ömurlegheitin voru víst nóg þarna fyrir.

Svei þér.

http://silfuregils.eyjan.is/2010/01/15/haiti-dagur-thrju-eftir-skjalfta/#comments
[Facebook]

Þrjótarnir eru duglegri að versla

Í fréttablaðinu í gær var áhugaverð lítil frétt sem ekki fór mikið fyrir og hefur ekki vakið mikla athyggli annarstaðar. Í henni segir frá könnun sem gerð var í Bretlandi sem að sýndi fram á það að þeir sem að sækja sér tónlist ólöglega á netið eru að sama skapi viljugri til þess að kaupa tónlist löglega. Þannig eyða þrjótarnir að meðaltali 15700 krónum í tónlist á ári á meðan þeir sem að segjast ekki sækja tónlist ólöglega eyða aðeins að meðaltali um 9000 krónum á ári.

Mikill meirihluti þeirra sem að svöruðu könnuninni sögðust að auki vera tilbúnir til að kaupa tónlist fyrir sanngjarnt verð í formi mp3 skráa.

Þessi frétt er sérstaklega áhugaverð í ljósi þess stríðs sem að STEF og SMÁÍS eiga við þá sem að eru að downloada tónlist og öðru. Ég hefði talið að viturlegra væri fyrir þá að reyna að ýta undir og einfalda viðskipti með þessar vörur á netinu og taka þannig út, alla vega að hluta, þörfina fyrir að sækjast í þetta ólöglega. Það sem útaf stæði gætu þeir síðan horft í gegnum fingur sér með þeim rökum að þetta er ekkert annað en ókeypis auglýsing fyrir listamennina.

[Facebook]

Þjóðin á þing

Borgarahreyfingin var stofnuð af fólki með hugsjónir og væntingar um að koma á lýðræðislegum umbótum, réttlátara samfélagi með gagnsæjum vinnubrögðum og umfram allt, heiðarleika að leiðarljósi

Slagorðið “þjóðin á þing” er engin tilviljun. Það var valið vegna þess að vildum að þjóðin fengi rödd inni á Alþingi Íslendinga. Þinghópur hreyfingarinnar var hugsaður sem brú frá grasrótinni þangað inn.

Að okkar mati hefur það mistekist.
Þess í stað hafa hugsjónir, stefna og kraftur hreyfingarinnar týnst í deilum og óánægju á alla kanta.

Við sem undir þetta ritum erum stolt af Borgarahreyfingunni eins og hún var hugsuð. Í stað þess að gefast upp fyrir þeim mistökum sem gerð hafa verið langar okkur að leggja okkar að mörkum til að hreyfingin finni uppruna sinn á ný og að vegur hennar verði sem mestur.

Þess vegna ætlum við að bjóða fram krafta okkar til stjórnar Borgarahreyfingarinnar.

Við komum fram sem hópur og gerum okkur vonir um að fá stuðning sem slíkur.
Engu að síður bjóðum við okkur hvert og eitt fram til starfsins sem einstaklingar.

Sem hópur höfum við sett saman grunn að stefnu þeirri sem við munum fylgja í störfum okkar og hana má skoða í tengdri skrá.

Við munum kynna stefnuna nánar á næstu dögum og á landsfundi hreyfingarinnar.

ÁsthildurJónsdóttirBjarki HilmarssonBjörg SigurðardóttirGuðmundur AndriSkúlason, Gunnar Gunnarsson (Neddi)Gunnar SigurðsonHeiða B. HeiðarsdóttirIngifríður RagnaSkúladóttirJón Kr.ArnarsonLilja SkaftadóttirSigurður Hr.Sigurðsson og Valgeir Skagfjörð

Framtíðarsýn

[Facebook]

Hæfur eða samkeppnishæfur

Laun forstjóra gömlu bankanna voru samkeppnishæf enda báru þeir svo mikla ábyrgð. Við vitum öll hvernig fór fyrir gömlu bönkunum þrátt fyrir samkeppnishæfa forstjóra og mikla ábyrgð.

Maður getur því ekki annað en velt því fyrir sér hvort að það sé hreinlega ekki betra að kjararáð ákvarði laun forstjóra ríkisbankanna og launin takmarkist þá við laun forsætisráðherra. Þannig væri kannski möguleiki á að fá hæfan forstjóra í staðin fyrir samkeppnishæfan.

Málið er nefninlega, eins og það lýtur út fyrir mér, að samkeppnishæfu starfsmennirnir hugsi fyrst og fremst um launin, bónusa og annað sem að snýr að þeirra eigin rassgati á meðan að hæfur starfsmaður hugsi kannski um hag bankans og jafnvel þjóðarinnar allar.

En þetta er kannski wishful thinking svo maður noti nú aðeins tungumál þjóðarinnar illu.

[Facebook]

Tökum smá áhættu

Aftur og aftur koma fréttir frá evrópu að hinir og þessir flokkar séu á móti inngöngu Íslands í ESB ef ekki verður gengið frá Iceslave samningunum. Á sama tíma koma stöðugar fréttir um það hvað Iceslave samningurinn sé slæmur fyrir þjóðina og að ESB og AGS hafi verið með puttana í málunum þegar að samningurinn var gerður.

Í síðustu viku var samþykkt að fara í aðildarviðræður við ESB (sælla minninga fyrir okkur í Borgarahreyfingunni, eða þannig) en enn á eftir að samþykkja Iceslave. Hvernig væri því að taka smá áhættu. Gambla aðeins. Fella Iceslave og láta svo á það reyna hvort að þeir sem að hafa verið með “hótanir” um að neita Íslandi inngöngu í ESB standi við stóru orðin.

Oft hefur því verið haldið fram að ESB vilji fá Ísland inn í sambandið til að komast yfir auðlindirnar okkar eins og t.d. fiskinn, raforkuna og svo hugsanlega olíu sem að gæti verið í landgrunninu. Ef þetta er raunin þá láta menn varla verða af hótunum um að koma í veg fyrir inngöngu Íslands.

Ef við fellum Iceslave og það verður samt farið á fullt við að semja við okkur, erum við þá ekki komin í betri samningsstöðu þar sem að við vitum hvers vegna ESB vill fá okkur inn?

Bara smá pæling.

[Facebook]

Þvingunarpólitík

Nú er ég ekki sáttur við þingmennina mína, þau Þór Saari, Margréti Tryggvadóttur og Birgittu Jónsdóttur.

Eftir hrunið í vetur tók ég þátt í mótmælunum af miklum móð, var á kafi í skipulagningu Opnu borgarafundanna og endaði svo á því að koma að stofnun Borgarahreyfingarinnar ásamt því að vinna baki brotnu að því að koma þessum einstaklingum á þing. Allt þetta gerði ég í þeim tilgangi að reyna að breyta samfélaginu og því hvernig alþingi, æðsta valdastofnun okkar, starfar. Ég var búinn að fá upp í kok af flokksræðinu sem þar ríkir og endalausum hrossakaupum þar sem að stuðningur við ákveðin, misgáfuleg, mál var falur fyrir rétt verð.

En nú hafa þessir þrír þingmenn Borgarahreyfingarinnar gert nákvæmlega þetta. Þeir vilja ekki styðja frumvarp nema að annað frumvarp verði fellt í staðin. Þetta eru ekkert annað en hrossakaup á borð við þau sem að við vildum berjast gegn. Og það get ég ekki samþykkt. Ég tók ekki þátt í þessu í vetur og vor til þess eins að verða eins og allir hinir. Ég hélt í einlægni minni að það væri hægt að breyta einhverju. En eina sem virðist breytast eru þeir sem að ætluðu að fara á undan með góðu fordæmi.

Stjórn Borgarahreyfingarinnar deilir sem betur fer ekki þessari skoðun með þingmönnunum og  gengur formaðurinn það langt að segja að þingmennirnir séu að bregðast trausti kjósenda sinna. Þessu er ég sammála því Borgarahreyfingin var, meðal annars, kosin út á það að ætla ekki að stunda svona pólitíska refskák eins og hinir flokkarnir. Því miður virðast þingmennirnir ætla að bregðast okkur að því leitinu og segi ég því við þau, eins og Þór sagði sjálfur fyrir ekki svo margt löngu, skammist þið ykkar.

[Facebook]

Hraðsuða á ályktun

Þessi frétt mbl.is er mjög mikil hraðsuða á ályktun umferðarráðs frá 14. maí. Stórum köflum er sleppt úr sem gerir það að verkum að fréttin er nánast algjörlega samhengislaus. Furðulegt þykir mér, í ljósi þess að það kemur nákvæmlega ekkert frá blaðamanninum heldur er þetta alfarið klippt úr ályktuninni, að ályktunin skuli ekki vera þarna í heild sinni.

Til að hjálpa mbl.is aðeins þá ætla ég að birta ályktunina í heild sinni. Hana er einnig að finna á heimasíðu Sniglanna, www.sniglar.is

Álykanir 227. fundar Umferðarráðs 14. maí 2009

Vegna breyttra aðstæðna í efnahagsmálum hér á landi má búast við að fólk ferðist meira innanlands en utan á komandi sumri. Fyrir bragðið má búast við aukinni bílaumferð sem hefur mögulega hættu í för með sér. Á tveimur undanförnum árum hefur átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun banaslysa í umferðinni, en aldrei hafa þau orðið færri tvö ár í röð á síðustu 40 árum. Fjöldi látinna í umferð á hverja 100.000 íbúa á þessu tímabili er hvergi lægri í Evrópu en á Íslandi. Vonandi tekst að halda áfram á sömu braut á þessu ári með aukinni vitund fólks um mikilvægi ýmissa öryggisþátta í akstri. Engu að síður hefur alvarlega slösuðum fjölgað síðustu árin. Helstu ástæður eru of mikill umferðarhraði, ölvunarakstur og vanræksla á notkun bílbelta. Til þess að sporna við þeirri þróun varar Umferðarráð við niðurskurði fjármagns til Umferðarstofu en afleiðingin af því er m.a. skert umferðarfræðsla til barna og umferðaráróður í fjölmiðlum. Þá hvetur Umferðarráð stjórnvöld til þess að auka umferðarlöggæslu á vegum landsins í sumar vegna aukinnar umferðar. Einnig hvetur Umferðarráð alla þá sem leið eiga um vegi landsins að leggja sitt að mörkum svo takast megi að fækka alvarlegum umferðarslysum.

Bifhjólum í umferð hér á landi hefur fjölgað gífurlega á undanförnum árum. Í árslok árið 2000 voru 2.278 bifhjól skráð hér á landi, en í lok síðasta árs voru þau 9.009. Alvarlega slösuðum bifhjólamönnum hefur einnig fjölgað mikið á sama tímabili. Því er það sameiginlegt viðfangsefni bifhjólamanna og ökumanna bifreiða að gefa auknu umferðaröryggi gaum. Báðir aðilar þurfa að hafa sívakandi athygli og sjái bílstjóri bifhjól þarf hann alltaf að vera sérstaklega vel á verði. Hann þarf alltaf að líta tvisvar til hliðar og fylgjast nákvæmlega með hreyfingum bifhjólsins. Á sama hátt er grundvallaratriði að ökumenn bifhjóla aki á löglegan hátt, séu í hlífðarfatnaði og fylgi hámarkshraðareglum. Með því gera þeir sitt til að auka öryggi í umferðinni.Umferðarráð vill minna á sívaxandi hóp fólks sem notar reiðhjól sem samgöngutæki og hjólar eftir götum eins og lög segja til um. Nú eru yfir 7000 þáttakendur í keppninni “Hjólað í vinnuna”. Ökumenn bifreiða eru hvattir til að virða rétt þeirra og sýna tillitssemi. Reiðhjól eru ökutæki í umferðinni sem fara oftast hægar en bifreiðar. Ökumenn bifreiða þurfa að gefa reiðhjólafólki nægjanlegt rými þegar þeir taka framúr. Þar sem aðstæður á götum eru þröngar eiga bílstjórar að bíða með framúrakstur þar til það er öruggt. Hjólreiðamönnum ber að sýna annarri umferð fulla tillitssemi og hleypa hraðskreiðari umferð framúr, þegar það er óhætt. Ennfremur að virða forgangsrétt gangandi vegfarenda á gangstéttum og blönduðum útivistarstígum.

[Facebook]

Góður dagur í dag og vonandi verður hann enn betri

Þetta er búinn að vera alveg ljómandi dagur í dag. Ég vaknaði tiltölulega snemma og eftir smá skrens á internetinu rölti ég yfir á Kjarvalsstaði til að kjósa. Aldrei þessu vant var ég ekki í neinum vafa um það hvað ég ætlaði að kjósa og að sjálfsögðu var það Borgarahreyfingin sem merkt var við, X við O.

Eftir að hafa kosið fór ég ásamt félaga mínum yfir í Skeifu í fæðuleit og vel mettir kíktum við síðan aðeins í kaffi til Helgu vinkonu okkar á kosningaskrifstofu Frjálslyndaflokksins.

Þegar þessari kurteisisheimsókn til andstæðingsins var lokið drifum við okkur niður á Laugaveg á kosningaskrifstofu Borgarahreyfingarinnar. Þar var heldur betur líf og fjör, troðið út að dyrum og allir í glimrandi fínu stuði. Ég þvældist þarna aðeins fyrir fólkinu og tók myndir í gríð og erg.

En að lokum fór svo að góða veðrið náði tökum á mig og ég bara varð að fara heim og sækja hjólið. Í svona veðri eins og er búið er að vera í dag verður maður hreinlega að taka hringinn og kíkja niður á torg og heilsa þar upp á liðið.

Nú er svo bara kosningavakan eftir og vonandi verður útkoman úr kjörkössunum í samræmi við, og helst betri, en skoðanakannanir hafa verið að sýna. Kannski að maður endi bara á því að skála í XO fyrir X-O.

[Facebook]

Skuldir Heimilanna – XO – Margrét Tryggvadóttir 1.Sæti Suður

[Facebook]

Skilaboðaskjóðan…

… eða hvers vegna ég á að kjósa Borgarahreyfinguna

[Facebook]