Gaukshreiðrið í Þjóðleikhúsinu

plakat_litidÍ byrjun maí fór fram árlegt val Þjóðleikhúsins á athyglisverðustu áhugaleiksýningunni og fyrir valinu varð leikritið Gaukshreiðrið (One Flew Over the Cuckoo’s Nest) eftir Dale Wasserman í flutningi Halaleikhópsins og í leikstjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að leika í þessu leikriti með Halaleikhópnum og þar af leiðir steig ég á stokk í Þjóðleikhúsinu en sýningin var í gær.

Óhætt er að segja að sýningin hafi heppnast eins og best verður á kosið því stóri salurinn, að undanskildum svölunum, var troðfullur og skilst mér að það hafi verið um 3-400 áhorfendur í salnum. Og ekki voru undirtektir áhorfenda af verri endanum því það var hlegið og klappað nánast látlaust allan tímann og gaf það okkur leikurunum aukinn kraft og úr varð hin besta skemmtun, bæði fyrir áhorfendur og okkur sem á hinum endanum voru en stór hluti leikaranna voru að stíga sín fyrstu skref í að leika í þessu leikriti.

En það sem að er einna skemmtilegast við þetta er að Halaleikhópurinn er blandaður leikhópur þar sem að fatlaðir og ófatlaðir koma saman á jafnréttisgrundvelli og sýna það og sanna að ef viljinn er fyrir hendi þá er allt hægt. Allir lögðust á eitt við að gera þessa sýningu sem allra mesta og besta og uppskárum við laun erfiðisins í Þjóðleikhúsinu í gær.

Aðkoma Þjóðleikhúsins að þessu var líka hreint til fyrirmyndar og gerði hreint frábært starfsfólk þar allt sem að mögulegt var til að bæta aðgengi fatlaðra að húsinu og sýningunni og efast ég ekki um að leikhúsið muni nýta sér þessa reynslu til að vinna enn frekar að því að gera fötluðum sem auðveldast að njóta þess að horfa á góðar leiksýningar. Það sem að er einna merkilegast og um leið skemmtilegast við þetta er að fyrir 4-5 árum var kvartað yfir því við Þjóðleikhúsið að aðgengi fatlaðra væri hreint út sagt hræðilegt og fengust þá þau svör að við því væri ekkert að gera því húsið væri svo gamalt. En Tinna Gunnlaugsdóttir og aðrir starfsmenn Þjóðleikhúsins hafa nú sýnt það og sannað að oft þurfi bara smá hugarfarsbreytingu og örlítið þor og þá er hægt að leysa nánast hvaða vandamál sem er.

Ég vil því þakka stjórn og starfsmönnum Þjóðleikhúsins fyrir þetta frábæra kvöld sem að gærkvöldið var og ég vil líka og ekki síður þakka Halaleikhópnum fyrir frábært samstarf í vetur.

orévwa

[Facebook]