Kominn tími á að koma sér á framfæri
Fyrir rúmum fjórum árum lét ég loksins þann draum rætast að fá mér alvöru myndavél. Fyrir valinu varð notuð Canon EOS 620 filmuvél og fékk ég með henni tvær linsur. Þessi kaup urðu upphafið af ferðalagi sem sér ekki fyrir endann á. Það liðu ekki nema 6 mánuðir þangað til ég var kominn með digital vél, EOS 350D og farinn að taka myndir af miklum móð. Ég sótti námskeið í ljósmyndun, keypti bækur um ljósmyndun og kynnti mér vinnslu ljósmynda. Ég var líka á tímabili kominn með búnað til að framkalla filmurnar úr gömlu vélinni en gaf það upp á bátinn á endanum vegna aðstöðuleysis.
Núna í haust ákvað ég svo að stíga skrefið til fulls og skráði mig í grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlabrautar Tækniskólans með það fyrir augum að klára svo í kjölfarið ljósmyndabrautina hjá þeim. Reyndar hef ég hug á því líka að taka grafíska miðlun en það er önnur saga. Ég er s.s. að dunda mér við þetta núna í fjarnámi og ætla að reyna að klára allt grunnnámið þannig og stytta þannig eins og ég get tímann sem að ég þarf að vera í skólanum sjálfum.
En þar sem að ég er nú farinn að feta þessa braut, í áttina að því að geta kallað mig ljósmyndara án forskeytisins áhuga, ætla ég að fara að ota mínum tota. Ég hef að vísu í langan tíma verið með myndagallerí á síðunni minni og svo valdar myndir á flickr en í gær kláraði ég að setja upp ljósmyndablogg þar sem ég mun hægt og rólega setja inn þær myndir eftir mig sem ég tel vera einna besta. Ég er svo að þróa það með mér hvaða upplýsingar ég set inn með hverri mynd og hversu miklar. Eins og er set ég bara smá lýsingu á myndinni og stað og stund þegar hún er tekin en hugsanlega mun ég bæta við upplýsingum um helstu stillingar vélarinnar þegar ég tók myndina.
Vonandi eiga sem flestir eftir að njóta myndanna og ef einhver hefur áhuga á því að eignast útprentanir af þeim er ég alltaf tilbúinn til samninga.
![[Facebook]](http://www.selkot.com/blogg/wp-content/plugins/bookmarkify/facebook.png)







