Áramótableikjan

Um hver áramót hittist vinahópurinn og borðar áramótasteikina saman. Venjan er sú að hver og einn leggi eitthvað til. Húsráðendurnir sjá um kalkúninn og meðlætið með honum. Einhverjir koma með vínið með matnum og svo sér einhver um eftirréttinn. Undanfarin ár hef ég, í samvinnu við Agga vin minn, séð um forréttinn. Við reynum alltaf að finna upp á einhverju nýju og alltaf reynum við að hafa einhverskonar fisk til að vega upp á móti kalkúninum.

Í ár varð fyrir valinu að hafa steikta bleikju. Eftir að hafa gramsað aðeins á netinu fann ég uppskrift á mbl.is sem mér leist mjög vel á og ákvað ég að láta vaða á að nota hana. Skemmst er frá því að segja að þetta heppnaðist mjög vel og rann bleikjan ljúflega niður.

En hér kemur uppskriftin fyrir þá sem vilja prófa.

Steikt bleikja undir stökku brauði

Fyrir 4

Hráefni

  • 800g Bleikjuflök (roð og beinlaus)
  • 4 stk brauðsneiðar
  • 2 stk eggjarauða
  • 3msk apíkósusulta
  • 3msk soyasósa
  • 1 tsk chilisósa(eða fínt saxaður chili)
  • 1 tsk hvítlaukur (fínt saxað)
  • 1 tsk sesamolía
  • 1 msk kóríander (fínt saxað)
  • 1/2 lime limesafi

Aðferð

Skerið skorpu af brauðsneiðum og rúllið yfir það með kökukefli þar til að brauðið verður eins þunnt og hægt er.
Skerið bleikjuna niður í bita og penslið með eggjarauðunni og kryddið með salti og pipar, steikið í olíunni á heitri pönnu á brauðhliðinni fyrst.
Í sósuna er öllu blandað vel saman og smakkað til með salti og pipar. Borið fram með góðu salati.

[Facebook]

Himneskt lasagna

Ég legg það nú ekki í vana minn að skrifa um mat en lasagnað sem að ég eldaði áðan var bara svo gott að ég má til með að leyfa fleirum að njóta þess. Hugmyndina að þessu lasagna fékk ég eftir að hafa googlað lasagna uppskriftir og fann tvær sem að mér leist sérstaklega á. Ég ákvað þá að blanda þessum uppskriftum saman en lét það samt ekki duga heldur kom mínu eigin fingrafari á það líka. ATH, myndin sýnir ekki gæðalasagnað mitt.

En uppskriftin er á þessa leið:

Kjötsósa:
500 gr hakk
1 pakki beikon
1 stór laukur
1 paprika af þeim lit sem ykkur hugnast (var sjálfur með rauða)
3-4 hvítlauksgeirar
100 gr Sveppir
1 dós tómatar (var með sósu en alveg hægt að nota hakkaða líka)
1 dós tómapuré
timian
basilikum
Oregano
chilli krydd
salt og pipar
Olía til steikingar

Hvít sósa:
1 piparostur
mjólkurdreytill

lasagna plötur
rifinn ostur

Matreiðsla:
Beikonið, utan 4-5 sneiðar, er skorið niður í litla bita og steikt á pönnu. Beikonið tekið af pönnunni og sett til hliðar. Grænmetið skorið í mátulega litla bita og steikt á pönnu og sett svo til hliðar. Hakkið brúnað á pönnu og kryddað með timian, basilikum, oregan, pipar og chilli (kryddað eftir smekk). Saltað eftir þörufm en munið að beikonið er salt. Tómatpuré og tómatsósu bætt út í og leyft að malla aðeins. Grænmetinu og beikoni bætt út í og látið malla. Á meðan að þessu hefur staðið er gott að leyfa piparostinum að bráðna í smá mjólk.
Þegar að piparosturinn er bráðnaður og kjötsósan bún að malla er byrjað að raða þessu saman. Smá af piparostinum er sett í botninn á eldföstu móti. Þriðjungur af kjötsósunni fer þar ofan á og svo lasagna plata. Piparostur settur ofan á lasagna plötuna og næsti þriðjungur af kjötsósunni þar ofan á. Annað svona lag sett, lasagna plata, rest af piparosti og rest af kjötsósu. Ofan á þetta fer síðan ein lasagna plata til viðbótar og svo osturinn. Ofan á ostinn fara síðan beikonsneiðarnar sem að voru geymdar í upphafi. Bakað í 200° heitum ofni í 30 mín. Mjög gott er síðan að strá smá Maldon Sea Salt (í flögum) yfir þegar þetta er tekið út úr ofninum.

Með þessu er síðan hægt að hafa nánast hvaða meðlæti sem er en ég var með hrásalat og hvítlauksbrauð.

[Facebook]